Stefanía Þorgeirsdóttir

Líffræðingur

  • Staða nánar
    Sérfræðingur á sviði riðurannsókna
  • Starfseining
    Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum
  • Aðsetur
    Tilraunastöð HÍ. í meinafræði - Keldum
  • Sími
    5855163
  • Gsm
    8669249
  • Tölvupóstur
    stef [hjá] hi.is

Sérsvið / rannsóknasvið

Príonsjúkdómar í dýrum og mönnum. Riðuskimun í sauðfé. Arfgerðir príongensins.

Samstarfsaðilar í rannsóknum

Matvælastofnun

Námsferill

1988-1995: Boston University, Ph.D., Department of Microbiology, Boston Univ. School of Med. Characterization of Cd2+ effects on acid soluble UTP pools, microtubule organization and glutathione content in 3T3 cells.

1984-1987: Háskóli Íslands, B.Sc. Líffræði.

1983-1984: Ludwigs-Maximillian Universitat, Munchen, Líffræði.

1982-1983: Freie Universitat, Vestur-Berlín. Þýska og þýskar bókmenntir.

1978-1982: Menntaskólinn í Reykjavík, Stúdent. Náttúrufræðideild I.

Starfsferill

Frá 1996: Sérfræðingur við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Rannsóknir á príonsjúkdómum í sauðfé og mönnum á sviði sameindalíffræði. Verkefnisstjóri þjónusturannsókna á sviði riðuskimunar frá 2005.

1987-1988 og 1986 (sumar): Háskóli Íslands, Örverufræðideild, Rannsóknarstofa í veirufræði, Rannsóknarmaður. Greiningar á veirusjúkdómum.

1985 (sumar): Háskóli Íslands, Örverufræðideild, Rannsóknarstofa í örverufræði. Rannsóknarmaður. Vann við rannsóknir á hitakærum örverum.


Kennsla:

2004: Leiðbeinandi Ástu Daggar Jónasdóttur 3.árs nema í Læknadeild HÍ á vormisseri 2004 í rannsóknarverkefninu: Rannsókn á breytileika í príongeni í heilbrigðu íslensku þýði.

2003: Leiðbeinandi Þórðar Tryggvasonar 4. árs nema í Læknadeild HÍ á vormisseri 2003 í rannsóknarverkefninu: Rannsókn á breytileika í tákna 129 í príongeni í heilbrigðum Íslendingum.

2002: "Eiginleikar príonstofna" í námskeiðinu "Viðfangsefni í sameindalíffræði" (02.01-72-020) sem kennt var við HÍ undir stjórn Sigurðar Ingvarssonar á vormisseri 2002.

1997 og 1998: leiðbeinandi Hjalta Más Þórissonar læknanema í Nýsköpunarsjóðsverkefni. Verkefni Hjalta Más, "Rannsókn á samhengi milli arfgerða príongensins og riðusmits í einni riðuhjörð", fékk útnefningu til Nýsköpunarverðlauna í janúar 1999.

1989-1994: Boston University, Department of Microbiology, Teaching Fellow, Medical Microbiology. Sá um verklega kennslu í örverufræði, aðallega greiningar á sjúkdómsvaldandi bakteríum.