Jónatan Þórmundsson

Prófessor emeritus

Námsferill

Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík, júní 1957.
Kandídatspróf frá lagadeild Háskóla Íslands, janúar 1964.

Framhaldsnám í lögfræði og afbrotafræði við University of California í Berkeley 1965-1966. 

Námsdvöl við háskólana í Kaupmannahöfn, Oslo og Stokkhólmi 1967.

Tungumálanám við tvo háskóla á Ítalíu 1958-1959, 1962 og 1976.

Starfsferill

Fulltrúi ríkissaksóknara 1964-1970.
Lektor við lagadeild Háskóla Íslands (hlutastarf) 1967-1970.
Prófessor við lagadeild Háskóla Íslands frá 1. ágúst 1970 til ársloka 2007.
Forseti lagadeildar 1972-1974, 1986-1988 og 1998-2000; auk þess starfandi deildarforseti þrisvar nokkra mánuði í senn.
Varaforseti háskólaráðs tvívegis, eitt ár í senn, og gegndi starfi háskólarektors um tíma 1972-1973.
Formaður meistaranámsnefndar lagadeildar H.Í. 2002-2006.
Ritstjóri Tímarits lögfræðinga 1984-1989.
Sat í yfirskattanefnd (hlutastarf) 1992-2008.
Rannsóknar- og saksóknarastörf í nokkrum viðamiklum sakamálum.
Löggiltur dómtúlkur og skjalþýðandi á og úr ítölsku frá 1975.
Um tímabundin verkefni fram til 1992 er annars vísað til Lögfræðingatals 1736-1992, bls. 525 og áfr.
Sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við lagadeild Háskóla Íslands árið 2008 í tilefni 100 ára afmælis lagakennslu á Íslandi.