Jórunn Erla Eyfjörð

Prófessor

  • Starfseining
    Heilbrigðisvísindasvið - Læknadeild
  • Aðsetur
    Læknagarður, Lg-431
  • Sími
    5825/ 5831/ 5832
  • Tölvupóstur
    jorunne [hjá] hi.is
  • Ritaskrá

Sérsvið / rannsóknasvið

Helstu rannsóknaverkefni Jórunnar hafa beinst að áhrifum breytinga í krabbameins- áhættugenum. Hún tók virkan þátt í leit að svokölluðum BRCA (brjóstakrabbameins) genum og fann ásamt samstarfsfólki sínu landnemabreytingu í BRCA2 geni 1996. Í samstarfi við Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins, Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði og LSH hefur hún unnið að ýmsum rannsóknum á tengslum breytinga í BRCA1 og BRCA2 genum við krabbameinsáhættu og sjúkdómsferil í brjósta- og blöðruhálskrabbameinum. Meðal núverandi verkefna má nefna: Rannsókn þar sem brjósta- og blöðruhálskrabbameinssýni eru rannsökuð með örgreiningartækni (í samstarfi við NimbleGen Systems) og erfða- og tjáningarmynstur æxlisfruma með og án galla í BRCA genum skoðuð m.t.t. upplýsinga um sjúkdómshorfur og svörun við meðferð; Ranssóknir á óstöðugleiki erfðaefnis, DNA viðgerð og frumuskiptingum í frumum með galla í BRCA genum (í samstarfi við Leiden háskóla); Rannsókn á áhrifum sviperfðabreytinga (epigenetic changes) í æxlisvef; Rannsókn á áhrifum lyfjasprota á frumur með og án BRCA galla.

Samstarfsaðilar í rannsóknum

Innanlands:
Próf. Jón Gunnlaugur Jónasson, próf. Jóhannes Björnsson, forstöðumaður og Kristrún Ólafsdóttir, yfirlífeindafræðingur á Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði. Próf. Óskar Þ. Jóhannsson, krabbameinsdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss. Próf. Elín Soffía Ólafsdóttir og dr. Margrét Þorsteinsdóttir Lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Próf Laufey Tryggvadóttir og Guðríður Ólafsdóttir, Krabbameinsskrá KÍ. Dr. Sigríður Valgeirsdóttir, Roche NimbleGene Systems Iceland.

Erlendis:
Prof. Michael R Stratton, FMedSci FRS,?Acting Director?Wellcome Trust Sanger Institute,? Cambridge, UK.
Prof. Ashok Venkitaraman, Dep. of Oncology and the Medical Research Council Cancer Cell Unit, University of Cambridge, Cambridge, UK.
Prof. Anne-Lise Börresen-Dale, PhD, MD (h.c.), Department of Genetics, Institute for Cancer Research, Oslo University Hospital, Radiumhospitalet.
Prof Hans Tanke and Dr. Karoly Szuhai, Dep. of Molecular Cell Biology, Leiden University Medical Cente, Lei

Námsferill

Jórunn Erla stundaði grunnnám við Háskóla Íslands og Minnasota háskóla og lauk doktorsprófi í sameindaerfðafræði frá Sussex háskóla í Englandi 1976. Doktorsverkefni hennar fjallaði um viðgerð á DNA skemmdum af völdum geislunar.