Karl Skírnisson

Líffræðingur

  • Staða nánar
    Dýrafræðingur
  • Starfseining
    Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum
  • Aðsetur
    Tilraunastöð HÍ. í meinafræði - Keldum
  • Sími
    5855160/8481199
  • Tölvupóstur
    karlsk [hjá] hi.is

Sérsvið / rannsóknasvið

Dýrafræði, sníkjudýrafræði, sjúkdómarannsóknir

Samstarfsaðilar í rannsóknum

Erlendir samverkamenn m.a. í Rússlandi (K Galaktionov, A Galkin, K Regel, S Mironov), Tékklandi (L Kolarova, J Aldhoun, P Horak), Frakklandi (D Jouet, H, Ferté), BNA (E Hoberg, SE Loker, S Brant), Noregi (JO Bustnes) og Litháen (G. Valkiunias).

Námsferill

BS frá líffræðiskor HÍ 1977, BS 120 frá líffræðiskor HÍ, 1979 og Dr. rer. nat frá Forschungsstelle Wildbiologie, Institut für Haustierkunde, CAU Universität, Kiel, Þýskalandi 1986

Starfsferill

Vann við líffræðiskor HÍ 1977-1979 við rannsóknir á villtum mink, og við Tilraunastöðina á Keldum 1979-1981 við rannsóknir á riðuveiki í sauðfé og inflúensurannsóknir í villtum fuglum og spendýrum. Doktorsnám í Kiel 1981-1986. Atferlis- og vistfræðirannsóknir á steinmörðum. Vann á Náttúrufræðistofnun Íslands 1986-1987 við rannsóknir á villtum mink. Frá 1987 við dýrafræðideild Tilraunastöðvarinnar á Keldum við sníkjudýra- og sjúkdómarannsóknir í húsdýrum, gæludýrum, villtum spendýrum og villtum fuglum sem og í mönnum.