Sigurður H Richter

Líffræðingur

Sérsvið / rannsóknasvið

Dýrafræði, sníkjudýrafræði.

Námsferill

Stúdentspróf úr stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík,1963.
Cand. Scient. embættispróf í náttúrufræði frá Københavns Universitet, 1971.
Námið var á náttúrufræðibraut með dýrafræði sem aðalfag og sníkjudýrafræði sem sérgrein.

Starfsferill

Störf með háskólanámi

Gróðurkortagerð hjá Atvinnudeild Háskóla Íslands sumurin 1964 og 1965.
Dýrafræðirannsóknir fyrir Lunds Universität og Surtseyjarfélagið sumurin 1966-1969.
Aðstoðarkennari við Københavns Universitet 1971.

Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum

Sérfræðingur í sníkjudýrafræði 1971-1991.
Fræðimaður 1991-1997.
Vísindamaður frá 1997.
Settur forstöðumaður í hálft ár 1993-1994 og aftur 2001.
Í 49% starfi frá og með 2005.

Þjónusturannsóknir: Greining sníkjudýrasýkinga í mönnum fyrir sjúkrahús, heilsugæslustöðvar og lækna og í búfé og heimilisdýrum fyrir dýralækna, bændur og einstaklinga. Greining sníkjudýra í innfluttum dýrum í einangrunarstöðvum. Greining meindýra fyrir heilbrigðisfulltrúa, meindýraeyða og einstaklinga. Þjónusturannsóknunum hefur fylgt veruleg ráðgjafarstarfsemi, auk kennslu á námskeiðum.

Grunnrannsóknir: Á ýmsum sviðum dýrafræði en einkum á sníkjudýrum í búfé, heimilisdýrum, villtum dýrum og mönnum. Hluti þessara rannsókna hefur verið í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. Höfundur eða meðhöfundur að bókarköflum,vísindagreinum, fræðigreinum og skýrslum. Einnig fyrirlestrum og veggspjöldum á vísindaráðstefnum og fundum.

Stjórnunarstörf. Hóf uppbygging sníkjudýrarannsókna á Tilraunastöðinni að Keldum og var þar lengst af í fyrirsvari. Nú starfa á því sviði þrír sérfræðingar, auk fólks í tímabundnum verkefnum. Einnig ýmis trúnaðar- og nefndarstörf, innan sem utan Keldna, svo og ritstjórn Ársskýrslu Keldna og fræðslustjórn á Keldum. Tvisvar fenginn til að taka tímabundið við starfi forstöðumanns Tilraunastöðvarinnar.

Kennsla við Háskóla Íslands

Stundakennari í dýrafræði, sníkjudýrafræði og skyldum greinum við Raunvísindadeild og Læknadeild Háskóla Íslands 1972-2007. Aðjúnkt við Líffræðiskor Háskólans 1990-2007. Fulltrúi aðjúnkta í deildarráði Raunvísindadeildar Háskólans 1993-1994 og 1998-1999.

Dýrafræði 1 (Dýrafræði B) í Líffræðiskor (4 e.): Með 35-25% af kennslu námskeiðsins í 35 ár (1972-2007).
Sníkjudýrafræði í Líffræðiskor (3 e.): Umsjónarkennari námskeiðsins og með 100-55% af kennslunni í 34 ár (1972-2007).
Hagnýt grasa- og dýrafræði í Líffræðiskor (3-2 e.). Umsjónarkennari námskeiðsins og með um 10% kennslunnar í 17 ár (1979-1995).
Rannsóknakynning í Líffræðiskor (1 e.): Umsjónarkennari námskeiðsins og auk þess með talsverða kennslu á námskeiðinu í 22 ár (1973-1995).
Sníkjudýrafræði fyrir læknanema í Læknadeild: Sex fyrirlestrar á ári í 17 ár (1972-1988).
Sníkjudýrafræði fyrir hjúkrunarfræðinema í Læknadeild: Fjórir fyrirlestrar á ári í 11 ár (1987-1997).
Lokaverkefni: Umsjón með einu 30-eininga, tveim 20-eininga og sex 5-eininga BS-verkefnum nemenda við Líffræðiskor. Prófdómari í MS-verkefnum í Læknadeild.

Ríkisútvarpið - Sjónvarp

Umsjón með sjónvarpsþáttaröðinni "Nýjasta tækni og vísindi" í Ríkisútvarpinu-Sjónvarpi í 30 ár (1974-2004). Þættirnir voru fyrst mánaðarlega, síðan hálfsmánaðarlega og að lokum vikulega í vetrardagskrá. Lengd þátta oftast á bilinu 25-15 mínútur. Alls um 520 sjónvapsþættir.

Handritaskrif og umsjón með framleiðslu 38 sjónvarpsmynda um íslenskar rannsóknir og tækni fyrir Ríkisútvarpið-Sjónvarp á árunum 1985-1995.

Handritaskrif og umsjón með framleiðslu 18 sjónvarpsmynda fyrir Ríkisútvarpið-Sjónvarp um árlega "Hönnunarkeppni verkfræðinema í Háskóla Íslands", 1993-2009.

Ýmis önnur störf

Framkvæmdastjóri "Norræns tækniárs 1988" á Íslandi frá nóv. 1987 til mars 1989. Því fylgdi skipulagning viðburða (ráðstefna, sýninga, samkeppna o.fl.), vikulegra "Opinna húsa" hjá tugum stofnunana og fyrirtækja og umsjón með 1-2 síðna greinaflokki í 40 vikur í Morgunblaðinu undir nafninu "Norrænt tækniár á Íslandi".

Umsjón og ritstjórn í 9 ár (1989-1997) með mánaðarlegum heilsíðu greinaflokki "Rannsóknir á Íslandi" í Lesbók Morgunblaðsins fyrir Rannsóknarráð Íslands. (Alls 61 grein.)

Í ritstjórn "Icelandic Agricultural Sciences" (Búvísinda) frá 1988- 2004.
Í ritstjórn "Bulletin of the Scandinavian Societ