Magnús Karl Magnússon

Prófessor

- Staða nánarPrófessor í lyfja- og eiturefnafræði
- StarfseiningHeilbrigðisvísindasvið - Læknadeild
- AðseturHagi
- Vefsíða
- Sími525 - 5126
- Tölvupósturmagnuskm [hjá] hi.is
Sérsvið / rannsóknasvið
Magnúsi stýrir ásamt Þórarni Guðjónssyni dósent í líffærafræði Rannsóknastofu í stofnfrumufræðum sem er hluti af lífvísindasetri Læknagarðs. Rannsóknir Magnúsar beinast að m.a. hlutverki svokalaðra týrósín kínasa gena í stofnfrumum, bæði stofnfrumum í eðlilegum vef stofnfrumum í krabbameinum. Einnig beinast rannsóknirnar að æxlisgenum í hvítblæðum, sérstaklega s.k. týrósín kínasa æxlisgenum. Áhugi mann á þessari fjölskyldu æxlisgena hefur mikið aukist eftir að sýnt hefur verið fram á lyf er geta hindrað þessi æxlisgen hafa veruleg æxlisbælandi áhrif. Rannsóknirnar eru studdar af styrkjum frá Vísinda og tækniráði, Vísindasjóði LSH og Vísindasjóði Norrænu Ráðherranefndarinnar.
Námskeið kennd 2011 - 2012
- LÆK307G - Lyfjafræði II Ta
- LÆK028F - Stofnfrumur og frumusérhæfing
- LÆK092F - Tilurð krabbameina
- LÆK099F - Erfðatækni, umhverfi og samfélag
- LÆK565L - Verkefni til doktorsprófs
- LÆK306G - Lyfja- og eiturefnafræði
- LÆK307G - Lyfjafræði II Ta
- LÆK028F - Stofnfrumur og frumusérhæfing
- LÆK565L - Verkefni til doktorsprófs
- LÆK308G - Lyfjafræði I Ta
- SJÚ706G - Sjúkraþjálfun og heilsuvernd
- GSL303G - Lyfjafræði, skuggaefni og bráðaviðbrögð
- LYF106F - Samþætt sjúkdóma- og lyfhrifafræði
- HJÚ303G - Lyfjafræði
- LÆK565L - Verkefni til doktorsprófs
- LÆK306G - Lyfja- og eiturefnafræði (heilsársnámskeið)
Áætluð námskeið
Námsferill
Magnús lauk kandídatsprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands og eins árs rannóknarnámi árið 1991. Hann stundaði síðar nám í almennum lyflækningum og rannsóknarstörf við University of Wisconsins Hospital and Clinics í Bandaríkjunum á árunum 1994-1998 og siðar nam hann blóðmeinafræði við Bandarísku Heilbrigðisstofnunina (National Institutes of Health) á árunum 1998-2000 og var áfram við vísindavinnu og klínísk störf við sömu stofnun á árunum 2000-2002.
Starfsferill
Magnús Karl Magnússon var ráðinn í starf prófessors við Læknadeild og forstöðumanns Rannsóknastofnunar í lyfja- og eiturefnafræði 1. apríl 2009. Hann var áður sérfræðingur í blóðmeinafræði við rannsóknarsvið LSH frá árinu 2002 þar sem hann hefur borið ábyrgð á þróun sameindalæknisfræðilegum greiningum í hvítblæði og skyldum sjúkdómum. Auk þess hefur hann gegnt ýmsum nefndarstörfum, m.a. verið fagráði Vísinda- og tækniráðs á sviði heilbrigðis og lífvísinda og verið formaður þess frá árinu 2005-2008, verið í Vísindaráði LSH og einnig verið stjórnarnefndarfulltrúi Íslands við 7. Rannsóknaráætlun Evrópusambandsins. Magnús var stundakennari við Háskóla Íslands bæði við læknadeild og raunvísindadeild við Háskóla Íslands frá árinu 2003-2009.
