Björn Marteinsson

Dósent

  • Starfseining
    Verkfræði- og náttúruvísindasvið - Umhverfis- og byggingaverkfræðideild
  • Aðsetur
    VR-2, V02-336
  • Sími
    525 - 4651
  • Tölvupóstur
    bjomar [hjá] hi.is

Sérsvið / rannsóknasvið

Efnisfræði; eiginleikar og ending. Húsbyggingatækni; Húsaskoðanir, gerð og uppbygging bygginga og byggingarhluta, ásamt þátttöku í nýþróun á því sviði. Byggingareðlisfræði; varma- og rakaflutningur, úttektir á orkuþörf bygginga og aðferðum til að ná hagkvæmari orkunýtingu. Greining á byggingargöllum og skemmdum. Efnisprófanir.

Samstarfsaðilar í rannsóknum

Hef tekið þátt í fjölda samstarfs- og rannsóknahópa á Norðurlöndum og í Evrópu, í starfsemi sem tengist rannsóknum, verkefnaskilgreiningum og staðlagerð.

Námsferill

Byggingarverkfræðingur (Cs) Háskóla Íslands 1974, arkitekt LTH, Svíþjóð 1979, Ms í vélaverkfræði HÍ 2002, doktorsgráða í verkfræði(efnisfræði) KTH, Svíþjóð 2005

Starfsferill

Sérfræðingur við Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins frá september 1979, í hálfu starfi þar frá áramótum 2005/2006 og hálfu á móti sem dósent við verkfræðideild. Hef unnið við hönnun og ráðgjöf sem aukastarf af og til.