Eiríkur Steingrímsson

Prófessor

- StarfseiningLífefna- og sameindalíffræðistofa
- AðseturLæknagarður, Lg-504
- Sími525 - 4270
- Tölvupóstureirikurs [hjá] hi.is
Sérsvið / rannsóknasvið
Rannsóknir Eiríks fjalla einkum um starfsemi og hlutverk stjórnpróteinsins Mitf en það er nauðsynlegt fyrir eðlilega þroskun nokkurra mismunandi frumugerða, þ.m.t. litfruma húðar (melanocytes) og augna (RPE frumur) auk beinátsfruma (osteoclasts). Prótein þetta kemur einnig við sögu í myndun sortuæxla. Mitf próteinið stjórnar tjáningu frumusérhæfðra gena í litfrumum, binst DNA og örvar umritun genanna en meðal þeirra gena sem Mitf stjórnar eru gen sem hafa með frumusérhæfingu að gera, gen sem tilheyra frumuhringnum og gen sem eru mikilvæg í stýrðum frumudauða. Til að geta haft svo ólík áhrif á starfsemi litfruma er virkni og starfsemi Mitf próteinsins stjórnað af ýmsum boðleiðum.
Markmið rannsóknanna er að auka skilning okkar á því hvernig Mitf próteinið starfar í lífverunni, með hvaða próteinum það starfar og hvernig boðleiðir hafa áhrif á starfsemi þess. Vonast er til að niðurstöðurnar leiði til nýrra upplýsinga um starfsemi stjórnpróteina í þroskun litfruma og myndun sortuæxla.
Ýmsar aðferðir og tækni eru notaðar á rannsóknastofunni svo sem aðferðir sameindalíffræðinnar og lífefnafræðinnar en auk þess notar rannsóknastofan erfðabreyttar mýs og ávaxtaflugur. Mörg verkefnanna eru unnin í samstarfi við erlendar vísindastofnanir.
Námskeið kennd 2011 - 2012
- LÆK110G - Frumulíffræði og erfðafræði
- LÆK028F - Stofnfrumur og frumusérhæfing
- LEI203G - Lífefna- og frumulíffræði
- LÆK408G - Sameindalífvísindi B
- LÆK099F - Erfðatækni, umhverfi og samfélag
- LÆK441L - Verkefni til meistaraprófs
- LÆK565L - Verkefni til doktorsprófs
- LÆK028F - Stofnfrumur og frumusérhæfing
- LEI203G - Lífefna- og frumulíffræði
- LÆK408G - Sameindalífvísindi B
- LÆK565L - Verkefni til doktorsprófs
- LÆK565L - Verkefni til doktorsprófs
- LÆK209G - Lífefna og sameindalíffræði A
- LÆK310G - Sameindalífvísindi A
- LÆK441L - Verkefni til meistaraprófs
- LÆK565L - Verkefni til doktorsprófs
- LÆK565L - Verkefni til doktorsprófs
Áætluð námskeið
Námsferill
Eiríkur lauk BS prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1985 og doktorsprófi frá líffræðideild Kaliforníuháskóla í Los Angeles (UCLA) árið 1992. Rannsóknir hans þar beindust að fósturþroskun ávaxtaflugunnar Drosophila melanogaster. Eiríkur starfaði síðan sem "postdoctoral fellow" á rannsóknastofu þeirra Nancy A. Jenkins and Neal G. Copeland við ABL-Basic Research Program, deild sem tilheyrir National Cancer Institute í Frederick, Maryland. Rannsóknir hans þar fjölluðu um þroskun og erfðir músa. Frá 1997 hefur hann gegnt stöðu prófessors við læknadeild Háskóla Íslands. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum og var m.a. formaður fagráðs Heilbrigðis- og lífvísinda hjá Vísinda- og tækniráði árin 2003-5 og er nú fulltrúi menntamálaráðuneytisins í stjórn European Molecular Biology Laboratory (EMBL) og European Molecular Biology Conference (EMBC). Hann er einnig félagi í European Molecular Biology Organization, EMBO en það eru virtustu samtök Evrópu á sviði sameindalífvísinda.
