Einar Sigurbjörnsson

Prófessor

- Staða nánarí trúfræði
- StarfseiningHugvísindasvið - Guðfræði- og trúarbragðafræðideild
- AðseturAðalbygging, A-335
- Sími525 - 4346
- Gsm6951182
- Tölvupóstureisig [hjá] hi.is
- Ritaskrá
Sérsvið / rannsóknasvið
Kristin trúfræði
Kennimannleg guðfræði
Námskeið kennd 2011 - 2012
- GFR606G - Lítúrgía
- GFR913G - Kjörsviðsritgerð í trúfræði
- GFR916G - Kjörsviðsritgerð í trúfræði
- GFR801F - Starfsþjáflun í söfnuði.
- GFR561L - Lokaverkefni
- GFR801F - Starfsþjáflun í söfnuði.
- GFR561L - Lokaverkefni
- GFR021F - Barnastarf og fermingarfræðsla í söfnuði
- GFR609G - Helgisiða- og sálmafræði
- GFR561L - Lokaverkefni
- GFR914G - Kjörsviðsritgerð í trúfræði
- GFR917G - Kjörsviðsritgerð í trúfræði
Áætluð námskeið
Námsferill
Stúdentspróf frá MR 1964 og embættispróf í guðfræði frá Háskóla Íslands í júní 1969 (sérefnisritgerð í trúfræði: Kirkjan og embætti hennar. 211 s.). Stundaði nám í trúfræði og játningafræði við guðfræðideild Lundarháskóla 1970 - 74 og lauk doktorsprófi 1974. Doktorsritgerðin heitir: Ministry within the People of God. The Development of the Doctrines on the Church and on the Ministry in the Second Vatikan Council's De Ecclesia.
Starfsferill
Sóknarprestur á Ólafsfirði 1969-70, á Hálsi í Fnjóskadal 1974-75 og að Reynivöllum í Kjós 1975 - 78. Var jafnframt prestsstörfum stundakennari í trúfræði, trúarheimspeki og prédikun við guðfræðideild Háskóla Íslands frá upphafi háskólaársins 1975 til loka haustmisseris 1977. Skipaður prófessor í guðfræði með trúfræði sem aðalkennslugrein frá 1. janúar 1978. Kenndi jafnframt um tíma trúarheimspeki, embættisgjörð og hafði umsjón með messuflutningi.
Forseti guðfræðideildar 1981-85, 1990-93 og 2004-2006. Varaforseti háskólaráðs 1983-1985.
Í stjórn Guðfræðistofnunar 1990-2004 og frá 2006, forstöðumaður 1995-2004 og frá 2006.
Í ritnefnd Ritraðar Guðfræðistofnunar 1994-1998 og aftur 2001-2004, þá ritstjóri.
Formaður helgisiðanefndar íslensku þjóðkirkjunnar 1978 - 1997.
Fulltrúi þjóðkirkjunnar í nefndum á vegum Samkirkjuráðs Norðurlanda og hef sótt ráðstefnur á vegum þess.
Fulltrúi í Trúar- og skipulagsmálanefnd Alkirkjuráðsins1984 - 1992
Fulltrúi íslensku þjóðkirkjunnar á heimsþingi um trú og skipulag í Santiago de Compostela í ágúst 1993.
Þátttakandi í þátt í norrænu samstarfi um trú og skipulag 1987 - 1993 og aftur frá 2000.
Kirkjuþingsmaður 1994 - 1997.
Í Skipulagsnefnd þjóðkirkjunnar 1993 - 1997.
Skipaður í helgisiða- og sálmabókarnefnd Þjóðkirkjunnar 2003 og er formaður sálmabókarnefndar.
Í stjórnarnefnd norræns rannsóknaverkefnis Nordisk homiletik 1995 - 2000. Skýrsla kom út 2001.
Í stjórnarnefnd norræns rannsóknarverkefnis um vígslu kirkjunnar þjóna 1996-2005 og kom skýrslan út 2006.
Í stjórnarnefnd norræns rannsóknarverkefnis um sálma Lúthers í lífi Norðurlandabúa frá 2000 og er lokaskýrsla væntanleg 2007.
Verkefnisstjóri í verkefninu Þýdd guðsorðarit á Íslandi á 17. öld sem naut styrks úr Kristnihátíðarsjóði 2000-2003 og aftur 2005.
Í stjórn Vísindafélags Íslendinga frá 1999, varaforseti 1999-2004.
Forseti Vísindafélags Íslandinga 2004 - 2008.
Fulltrúi Háskóla Íslands í stjórn Guðbrandsstofnunar á Hólum í Hjaltadal frá 2004 (ritari).
Félagi í Vísindafélagi Norðmanna frá 1988.
Félagi í Vísindafélagi Íslendinga frá 1994.
Hlaut viðurkenningu Hagþenkis fyrir fræðastörf 1990.
